Ársfundur 2020
ByMánudaginn 24. febrúar kl. 19:30 mun ársfundur Siberian Husky deildar vera haldinn á skrifstofu HRFÍ á annari hæð í Síðumúla 15, 108 Reykjavík.
Byrjað verður á því að kjósa fundastjóra og lesa upp árskýrslu deildarinnar. Eftir það verður kosið í stjórn en þrír stjórnarmeðlimir eru nú að ljúka sínu kjörtímabili; Ólöf Gyða Risten Svansdóttir, Þórdís Rún Káradóttir og Þóra Lind Karlsdóttir.
“Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.” (frá starfsreglum HRFÍ um ræktunardeildir)
Ef deildarmeðlimir hafa einhver önnur mál sem þeir vilja að rædd séu á ársfundinum endilega sendið okkur póst á huskydeild@gmail.com.
Leave a Reply