Ársfundur Siberian Husky deildar

By

FB viðburður: HÉR

Ársfundur Siberian Husky deildar verður haldinn þriðjudaginn 7. mars kl. 20 á skrifstofu HRFÍ að Síðumúla 15, 108 Reykjavík. Að þessu sinni eru þrír stjórnarmeðlimir að ljúka sínu kjörtímabili og eru því þrjú sæti laus.

“Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.”